11.9.2007 | 08:41
Grey´s Anatomy
Er búið að stjórna lífi mínu síðustu daga!!
Helgin var róleg, BM Vallá grill á laugardag og á sunnudag fórum við í bíltúr í Skagafjörðinn til að heimsækja hann Tóta sem við fengum svo reyndar ekkert að hitta... hann var of upptekinn við að smala þetta var samt góð ferð því við hittum næstum alla aðra fjöldkyldumeðlimi Tóta
Dísa systir var svo góðhjörtuð að senda Tóta með seríu 2 af Grey´s norður og alveg síðan ég fékk diskana í hendurnar þá er ég bara búin að liggja og sökkva mér í vandræði Meredith og McDreamy ég á bara 8 þætti eftir og ég veit ekki hvað ég á að gera þegar þeir verða búnir... kannski læra? eða þvo þvott?
Ég byrjaði ekki að fylgjast með Grey´s fyrr en síðasta vor og því er ég að horfa á seríurnar 2 sem búnar eru áður en sú næsta byrjar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.