22.2.2008 | 23:03
Líf og fjör:)
Það var mikið grátið á miðvikudagskvöldið og vonandi verður mikið hlegið annaðkvöld
Við Guðbjörg áttum mjög rómó kvöld saman á miðvikudaginn... fórum út að borða á Strikinu og svo á 2. handklæða mynd sem heitir P.S. I love you. Fyrstu 5 mínúturnar voru rólegar en svo grét ég restina af myndinni Meira að segja Guðbjörg, sem grætur ekki yfir bíómyndum, fór með grátbólgin augu út úr bíósalnum
En annaðkvöld þá erum við Eiríkur að fara á Fló á skinni með starfsmannafélagi BM Vallá... þeir sem hafa séð þetta leikrit segja að ég muni grenja af hlátri, vona að það verði raunin
Annars er ekkert mikið að frétta, Kjartan og Harpa voru í heimsókn um síðustu helgi... skyndibitamatur í öll mál svo nú sé ég fram á að þurfa að kaupa mér nýja kjól fyrir árshátíðina sem er eftir rúma viku
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.