...

Eftir tæpan mánuð þá verð ég komin í jólafrí!!!Grin og ég hlakka svo til!!

Sit núna í tíma í stjórnun, það er frekar léleg mæting svona í morgunsáriðWink reikna samt ekkert með betri mætingu eftir hádegi þegar Helgi Bergs ætlar að kenna okkur allt um ÞjóðhagfræðiPinch það er kennt þessa viku og næstu og svo er farið í prófundirbúningCrying

Kallinn plataði mig til að horfa á Mr. Beans holiday í gær... vægast sagt hræðileg mynd, held ég hafi náð að hlæja einu sinni en restina af myndinni þá leið mér eiginlega bara illaWoundering

 


Mont

Er kannski asnalegt að setja vísu eftir pabba sinn inn á veraldarvefinn? jæja ég ætla nú samt að gera það... það er ekki á hverjum degi sem maður les vísur eftir pabba sinn í DVSmile

     Eitt er víst, að Flosa finnst

     feikilega gaman

     Að gera sem allra, allra minnst

     alveg dögum saman

Og svo önnur

     Vinna ef að á sér stað

     ýmsa tefur hikið

     Flesta hefur furðað hvað

     Flosi sefur mikið

Eins og sést á vísunum þá eru þetta vísur um Flosa Ólafs og eru í DV í tengslum við viðtal við FlosaSmile


Stóra spurningin

Ætti ég að fara í vísindaferð á morgun eða ekki?

Glitnir hafa ákveðið að bjóða okkur í heimsókn og reyna að kynna okkur heim peninganna og svo eftir það er Pub Quiz þar sem bjórinn flæðir fríttTounge 

Annars er bara rólegt að frétta héðan, dansaði við Sixties um síðustu helgi og ætla að vera dugleg að læra um næstu helgiSmile

Sit í agalega leiðinlegri kennslustund með honum Bjarna, maðurinn fékk stöðuhækkun því hann er svo lélegur kennari en sem betur fer þarf ég bara að umbera hann í 2 kennslustundirPinch 


Dansi dansi dúkkan mín...

... er eitt af uppáhaldslögum dóttur minnar, henni finnst æðislegt þegar við dönsum saman í hring með dúkkurnarSmile 

Ég er að fara á ball í kvöld með G og E, kannski verða S, S og Ö líka á ballinumTounge og á þessu balli ætla ég að dansa af mér rassgatið!Cool Það verður sko alveg geggjað gaman... Sixties er stuðhljómsveitWizard


Afhverju þarf maður að skrifa fyrirsögn??

Ég dansaði svo mikið á árshátíðinni á laugardagskvöldið að ég er með hælsæri!Pinch Ég skil ekki afhverju ég fer í háhælaða skó á svona viðburði, ég er ekki vön að ganga í háum hælum og kvöldið endar alltaf á að ég fæ illt í lappirnarTounge en það var mikið gaman, mikið drukkið, mikið dansað og mjög mikið hlegið... Örn Árnason er snillingurLoL ég get ekki sagt að sunnudagurinn hafi verið jafn skemmtilegur en rúmið á Grand Hótel var æðislegtSmile 

Við G vorum að taka eitt stykki fjármálapróf og ég er nokk viss um að það er ekkert sniðugt að taka próf þegar þynkan er enn til staðarWoundering  

p.s. Sorry að ég vakti þig Skúli Tounge


Edrú!

Það er vísindaferð á föstudaginn og ég ætla ekki að fara!Smile  

.....

Komin heim afturSmile Helgin var mjög skemmtileg þrátt fyrir þráláta bakverkiPinch 

Fimmtudagurinn fór í að koma okkur mæðgum til Reykjavíkur, föstudeginum eyddi ég í að reyna að koma bakinu í lag og svo um kvöldið var smá fjölskyldumatarboð sem var alveg einstaklega skemmtilegtSmile  ég gat lítið verslað í Kringlunni á laugardeginum, frekar fúltFrown en svo um kvöldið, eftir eina hvítvínsflösku, var ég orðin eldhress og skellti mér á ball í ÞorlákshöfnTounge ef manni er illt í bakinu þá á maður víst að fara og hreyfa sig og ég dansaði sko af mér rassgatið á ballinu!Grin það var virkilega gaman þrátt fyrir lélega mætingu hjá Þorlákshafnarbúum, það var troðið af Selfyssingum af yngri gerðinniWink 

Næsta helgi verður ekki edrú frekar en síðustu helgar en svo ætla ég að fara að einbeita mér meira að skólabókunum, það er víst bara rúmur mánuður í prófinCrying 


Veðrið

Það er kominn veturPinch þegar ég vaknaði í morgun þá var allt hvítt og fljúgandi hálkaDevil 

Annars er það að frétta að síðasta helgi var frábær, það var drukkið, borðað og svo drukkið meiraSmile Vísindaferðin var sam ekkert spes, fengum ekki einu sinni að sjá framleiðsluna... bara horfa á eitthvða vídeo og hlusta á kynningarfulltrúannShocking en bjórinn var mjög góðurSmile 

Uhm það er enginn búin að bjóða mér í mat næstu helgi en ég er samt að spá í að fara suður ef að veður leyfir, veit reyndar ekki hvort ég nenni á reiðhallarballið í höfninni.... er ennþá að jafna mig eftir síðustu helgiTounge

 Sit núna heima með henni G minni og við erum á fullu að gera verkefni í gæðastjórnun... rosalega duglegar að læraWhistling  Verkefnið er að finna vandamál hjá framleiðslufyrirtæki og reyna að laga það, við fengum strákana hjá BM Vallá í lið með okkur og ætlum að bjarga helluframleiðslu þeirra á AkureyriTounge

 


Bloggedíblogg

Ætli það sé ekki best að að blogga smáTounge

Fjarnemarnir eru komnir á Akureyri... það verður sko stuð um helginaWink Út að borða og bjór í kvöld,- vísindaferð, pizza, bjór, bjór og svo meiri bjór á föstudagskvöldið og ávaxtahlaðborð og bjór á laugardagskvöldiðTounge úff hvað það er gaman að vera háskólanemiLoL 

Þrátt fyrir allan bjórinn þá er nú varla að ég þori að drekka... búin að vera reyklaus í viku og er dauðhrædd um að falla ef ég fæ mér bjórBlush 

Í næstu viku er verkefnavika í skólanum sem þýðir að það eru ekki neinar kennslustundirSmile En að sjálfsögðu verð ég mjög dugleg að læra alla daganaWink og eftir miklar vangaveltur þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að það er alveg hægt að læra fyrir sunnanCool Ég held að Dísa systir sé í helgarfríi helgina 19-21 okt og Anna Helga systir var eitthvað að tala um að bjóða mér í mat næst þegar ég kemSmile 

Mæli með að þið kíkjið á http://www.jax.blog.is/blog/jax/ snilldar færsla um eiginkonuforritLoL


Stjörnumerkin

Störnumerkin eftir að kynlífi lýkur!!

Hrútur: "Ok , gerum það aftur!?"
Naut: "Ég er svangur / svöng--- pöntum pizzu"
Tvíburi: "Veistu hvar fjarstýringin er?"
Krabbi: "Hvenær giftum við okkur??"
Ljón: "Var ég ekki frábær??"
Meyja: "Ég verð að þvo rúmfötin?"
Vog: "Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka"
Sporðdreki: "Ég ætti kannski að tengjast þér?"
Bogmaður: "Ekki hringja í mig - ég hringi í þig"
Steingeit: "Áttu nafnspjald?"
Vatnsberi: "Gerum það núna í engum fötum!"
Fiskur: "Hvað sagðist þú annars heita?"

Ég er naut... en þið?Tounge


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband